Terms of service

 

 

Skilmálar

Verð á vöru og sendingakostnaður.

Öll verð í vefverslun eru með inniföldum 24% vsk en sendingakostnaður bætist síðan við áður en greiðsla fer fram. Vinsamlegast athugið að verð á netinu getur breyst án fyrirvara.

 

Afgreiðsla vöru

Allar pantanir eru afgreiddar innan 2 virkra daga. Sé varan ekki til á lager mun þjónustufulltrúi hafa samband og tilkynna um áætlaðan afhendingartíma vörunnar. Pöntunum er dreift með Dropp og gilda afhendingar skilmálar þeirra.

 

Ábyrgðarskilmálar

Sé vara gölluð er viðskiptavini boðin ný vara í staðinn, allt án kostnaðar fyrir viðskiptavin. Athugið að ábyrgðin nær ekki til tjóns sem hlýst af slysi, vanrækslu eða venjulegu sliti sem verður við notkun og eða sökum aldurs vörunnar. Svo hægt sé að meta hvort vara sé gölluð þarf að hringja í 8644074 til að leysa málin, hafa þarf kvittun til staðfestingar á kaupunum.


Að skipta og skila vöru

Viðskiptavinur getur skipt vöru ef vara er óskemmd og óopnuð í upprunalegum umbúðum. Kostnaður við endursendingu er á ábyrgð kaupanda. Ekki er boðið uppá endurgreiðslu, þess í stað fær viðskiptavinur inneignanótu.


Persónuvernd og trúnaður

Viðskiptavinur sem skráir sig á póstlistan fær send tilboð og fregnir af atburðum í tölvupósti. Í öllum tölvupóstum er hnappur sem býður upp á að láta fjarlægja netfang sitt af póstlista. Mögulegt er að við söfnum persónugreinanlegum upplýsingum, nafni, heimilisfangi, netfangi, simanúmeri og kreditkortanúmeri í tengslum við afgreiðslu á pöntun eða vegna annarra samskipta. Til dæmis skráum við þær persónugreinanlegu upplysingar sem nauðsynlegar eru til að koma til skila þeirri vöru sem keypt er. Einnig fjármálatengdar upplýsingar, svo sem kreditkortanúmer og heimilisfang vegna reiknings, og einstaklingsupplýsingar, svo sem netföng, heimilisfang, símanúmer og viðtökustað vörusendingar.

Fjármálatengdar upplýsingarnar eru nýttar eingöngu til að innheimta greiðslu fyrir þá vöru sem keypt er. Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp i tengslum við viðskiptin.

Upplýsingar verða ekki afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum.

 

Samþykki

Viðskiptavinur sem kaupir vörur í gegnum netverslun Visjón samþykkir þessa skilmála.